Gæðastjórnunarkerfi

Frá teikningu til rekjanlegra verkgagna.

Verkspor á að halda samhengi milli staðsetningar, framkvæmdar, ábyrgðar og staðfestingar — einfalt á verkstað, heildstætt á skrifstofu.

app.verkspor.app/verk/lindarhus/teikningar
Leita í verkefni
Á neti Skráning
A-102 · 1. hæðÚtgáfa C
Stofa
Eldhús
Herbergi
Bað
24
18
9
Frávik

#24 · Þétting við rör

Staðfesta frágang áður en vegg er lokað.

AJAnna · Pípulagnir
Í vinnsluFrestur 24.09.
01

Teikningin er vinnuflöturinn.

PDF-teikningar með punktum, myndum, lýsingum og verkþáttum. Finna rétt gögn án þess að leita í skilaboðum.

02

Hvert atriði á eiganda.

Ábyrgð, frestur, staða og eftirfylgni. Frávik fara í yfirferð áður en þeim er lokað.

03

Gögnin verða skilahæf.

Gátlistar, staðfestingar, útgáfur og skýrslur tengjast verkinu frá fyrsta degi.

Eiginleikar

Það sem er í Verkspor.

Verkstaður, gæðaskrár og fyrirtækið. Gæðakerfið fylgir leiðbeiningum HMS 4.6.1, 4.8.1 og 4.10.2.

Á verkstað

Teikningar

PDF með útgáfum, aðdrætti og punktum beint á blaðið.

Skráningar

Framvinda, athugasemd, útfærsla og frávik. Frestur, ábyrgð, myndir og saga fylgja hverju atriði.

Gátlistar

Sniðmát með svörum og mynd. Frávik verður að skráningu með ábyrgðaraðila.

Skýrslur

Skilapakki í PDF, CSV og JSON, afmarkaður eftir tegund, stöðu, rými og dagsetningu.

Gæðakerfi

Gæðahandbók

Tilgangur, verklag, lög, staðlar og lýsing á vistun skráa.

Hæfni

Starfsleyfi, löggilding, menntun og endurmenntun, með skjali.

Hlutverk og yfirlýsingar

Byggingarstjóri, hönnunarstjóri, hönnuður, iðnmeistari og eigandi. Ábyrgðarsvið, yfirlýsingar og skipti.

Hönnunargögn

Móttekið og útgefið, lagt fram eða samþykkt, og breytingar á framkvæmdatíma.

Samræming

Skrá hönnunarstjóra yfir samræmd hönnunargögn og athugasemdir.

Eftirlit og úttektir

Áætlun um innra eftirlit. Innri, áfanga-, stöðu-, öryggis- og lokaúttekt með niðurstöðu.

Samskipti

Leyfisveitandi, HMS, skoðunarstofa, Vinnueftirlit og aðilar verksins.

Handbók verks

Samþykkt hönnunargögn, úttektir og vottorð byggingarvöru saman á einum stað.

Fyrirtækið

Fólk

Boð, hlutverk og heimildir á hverju verki.

Gæðaskjöl

Útgáfuferli frá drögum til gildandi skjals, fyrir fyrirtæki eða einstakt verk.

Rými og verkþættir

Skráningar, gátlistar og eftirlit tengjast rými og verkþætti.

Viltu taka Verkspor í notkun?

Sækja um samstarf